Hlutabréf easyJet lækka
mbl.is/Skapti
Gengi hlutabréfa breska lággjaldaflugfélagsins easyJet hefur lækkað um 6,6% í kauphöllinni í Lundúnum í dag eftir að forstjóri félagsins viðurkenndi að easyJet ætti í erfiðleikum með að halda áætlun á sumum flugleiðum vegna skorts á starfsfólki.
Carolyn McCall, sem tók við forstjórastarfinu í byrjun júlí, sagðist í dag myndu einbeita sér að því að auka stundvísi flugvéla easyJet og fjölga starfsfólki tímabundið á Gatwick-flugvelli.
Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur að undanförnu haldið mjög á lofti hve easyJet hefur átt erfitt með að halda áætlun. Nýlega þurfti Michael O'Leary, forstjóri Ryanair, að biðja Stelios Haji-Ioannou, stofnanda easyJet, afsökunar á því að líkja honum við ævintýrapersónuna Gosa og gefa þannig til kynna að hann segði ósatt um stundvísi easyJet.
En á mánudag notaði Ryanair mynd af Robert Mugabe, forseta Simbabve, til að undirstrika að bera mætti saman easyJet og Air Zimbabwe þegar fjallað væri um stundvísi flugvéla á Gatwick.
„Hér er mynd af nýjum yfirmanni stundvísi hjá easyJet," sagði í auglýsingu frá Ryanair sem birt var í breskum blöðum undir mynd af Mugabe. Breskir fjölmiðlar sögðu í síðustu viku, að flugvélum easyJet gengi ver að standast áætlun en ríkisflugfélagi Simbabwe.
Stelios Haji-Ioannou hótaði því í vikunni, að hann myndi svipta flugfélagið réttinum til að bera nafnið easyJet ef þessum málum yrði ekki kippt í lag á næstu þremur mánuðum.
EasyJet birti í dag rekstarupplýsingar um 2. ársfjórðung þar sem kom fram, að tekjur námu 759,2 milljónum punda og jukust um 5,3% milli ára. Hins vegar hefði öskuskýið frá Eyjafjallajökli leitt til þess að aflýsa varð 7341 flugferð í apríl og kostnaður vegna þessa var um 65 milljónir punda. Félagið stendur enn við áætlun um að hagnaður fyrir skatta verði 100-150 milljónir punda á árinu.
FL Group átti um tíma 16,2% hlut í easyJet.



















