Viðskipti
| mbl
| 28.7.2010
| 8:01
Öskuskýið dró úr hagnaði Air France-KLM
Evrópska flugfélagið Air France-KLM segir, að hagnaður á öðrum ársfjórðungi hafi numið 736 milljónum evra, jafnvirði 116 milljarða króna, en á sama tímabili fyrir ári var 426 milljóna evra tap á rekstrinum. Segir félagið, að afkoman hefði verið mun betri ef öskuskýið frá Eyjafjallajökli hefði elli stöðvað flugumferð í Evrópu í tæpa viku í apríl.
Raunar var 132 milljóna evra tap af reglulegri starfsemi félagsins en félagði græddi 1,03 milljarða evra á því að bókunarfyrirtækið Amadeus, sem Air France-KLM á hlut í, var skráð á hlutabréfamarkað.
Tekjur námu 5,72 milljörðum evra og jukust um 10,7% milli ára.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















