Viðskipti
| Morgunblaðið
| 29.7.2010
| 5:30
| Uppfært
6:14
Fámennur aðalfundur Arion banka
Stjórnarformaður Arion banka, Monica Caneman, var fjarstödd á aðalfundi bankans sem haldinn var í maí síðastliðnum. Stjórnarmaðurinn Steen Hemmingsen var heldur ekki á staðnum.
Þetta kemur fram í fundargerð bankans frá aðalfundinum, sem aðgengileg er hjá fyrirtækjaskrá. Fram kemur í fundargerðinni að fundurinn hafi ekki verið auglýstur eins og samþykktir félagins kveða á um.
Hluthafar óskuðu engu að síður eftir að fundurinn yrði haldinn. Hluthafar Arion banka eru tveir, eða Kaupskil sem er í eigu skilanefndar Kaupþings og íslenska ríkið. Ársreikningur bankans fyrir síðasta ár var samþykktur samhljóða af þeim fimm einstaklingum sem sátu aðalfundinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















