Viðskipti
| mbl
| 29.7.2010
| 12:45
Hagnaður ExxonMobile tvöfaldast milli ára
AP
Hagnaður olíufélagsins ExxonMobil nam 7,56 milljörðum dala á öðrum fjórðungi ársins, 916 milljörðum króna. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 3,95 milljörðum dala.
Er þetta mun betri afkoma en sérfræðingar höfðu spáð.
Segir félagið, að framleiðsla hafi aukist um 8% á öðrum ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra, aðallega vegna góðrar nýtingar á eignum þess í Katar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















