Viðskipti
| mbl
| 29.7.2010
| 7:39
Hagnaður hjá Sony
Hagnaður japanska raftækjaframleiðandans Sony nam 25,7 milljörðum jena, 35,5 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi, sem var raunar sá fyrsti í rekstrarári félagsins. Á sama tímabili á síðasta ári var 37,1 milljarðs jena tap á rekstrinum.
Sony hækkaði einnig afkomuspá sína fyrir árið allt og áætlar að hagnaðurinn verði 20-60 milljarðar jena.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















