Krónan hefur styrkst um 10,8% á einu ári
Gengi krónunnar hefur nú styrkst um 10,8% á einu ári og um 17,6% frá því að það fór lægst í lok árs 2008 eða rétt eftir hrun bankanna.
Fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka, að gengi krónunnar sé nú 5,6% sterkara en að meðaltali í fyrra. Um þetta leyti í fyrra hafi evran þá kostað 182 krónur og dollarinn 128 krónur. Nú kosti evran hins vegar 157 krónur og dollarinn 121 krónu.
Ef miðað er við sama tímabil árið 2007 hefur krónan lækkað um 47%. Þá kostaði evran 84 krónur og dollarinn 62 krónur.
Raungengi krónunnar á mælikvarða launa var 7,2% hærra á öðrum ársfjórðungi í ár samanborið við sama tímabil í fyrra samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans. Raungengi krónunnar svona mælt segir til um hvernig laun hér á landi eru að þróast í samanburði við laun í helstu viðskiptalöndunum mælt í sömu mynt og að teknu tilliti til framleiðniþróunar.



















