Nýr banki í Bretlandi
Nýr banki, Metro Bank, var opnaður í Lundúnum í dag. Er þetta sagður vera fyrsti nýi bankinn, sem opnaður er á Bretlandseyjum í heila öld en aðstandendur hans sjá tækifæri í óánægju almennings með gömlu bankana í kjölfar bankakreppunnar.
Annar stofnandi bankans er bandaríski kaupsýslumaðurinn Vernon Hill. Fyrsta útibú bankans var opnað í miðborg Lundúna í dag. Þar fengu kjölturakkar kex að maula á meðan eigendur þeirra opnuðu reikninga í bankanum.
Stefnt er að því að opna 250 útibú í Lundúnum á næsta áratug. Anthony Thomson, forstjóri Metro Bank, segir að í bankanum verði ekkert það sem fólk hati í hefðbundnum bönkum.
„Frá því bankakreppan hófst hefur fólk gert sér grein fyrir því, að bankastarfsemin sem við munum stunda: að taka við innlánum, og endurlána hluta þeirra til viðskiptavina, er það eina rétta," sagði Thomson.
Sérfræðingar hafa hins vegar lýst efasemdum um, að bankinn sé samkeppnishæfur. Þannig eru innlánsvextir hjá Metro Bank 0,5% en bestu vextir sem eru í boði annarstaðar, eru 2,8%.



















