Viðskipti
| mbl
| 30.7.2010
| 13:34
2,6% samdráttur í Bandaríkjunum í fyrra
Bandaríska viðskiptaráðuneytið segir nú, að bandaríska hagkerfið hafi dregist saman um 2,6% á síðasta ári. Er þetta mesti samdráttur, sem mælst hefur í Bandaríkjunum frá árinu 1946 og meiri en bráðabirgðatölur sýndu.
Er þetta skýringin á því hvers vegna atvinnuleysi fór í 10,1% í október sl. og hafði þá ekki verið meira í 26 ár.
Endurskoðaðar tölur viðskiptaráðuneytisins sýna, að enginn hagvöxtur var árið 2008 en fyrri tölur bentu til þess að hagvöxturinn hefði verið 0,4%. Þá var hagvöxturinn 1,9% árið 2007 en áður var talið að hann hefði verið 2,1%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















