Áfram tap hjá Mazda
Tap á rekstri japanska bílaframleiðandans Mazda Motor Corp. nam 2,1 milljarði jena, 2,9 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi. Afkoma félagsins hefur þó batnað mjög frá í fyrra þegar tapið var 21,52 milljarðar jena.
Afkoma stærstu japönsku bílaframleiðendanna hefur batnað mikið frá því í fyrra og í dag tilkynnti Honda, sem er sá næst stærsti á eftir Toyota, m.a. að methagnaður hefði orðið á öðrum ársfjórðungi, 272 milljarðar jena.
Mazda segir, að hátt gengi japanska jensins og 2,7 milljarða jena tap, sem var bókfært vegna nýja endurskoðunarreglna, hafi haft mikil áhrif á öðrum ársfjórðungi. Hins vegar hefðu sölutekjur aukist um 35% frá því í fyrra. Salan hefði einkum verið í góð í Japan, öðrum Asíuríkjum og Bandaríkjunum.
Mazda seldi 317 þúsund bíla á tímabilinu sem er 21% aukning.



















