Aukinn kraftur í sænskum hagvexti
Verg landsframleiðsla í Svíþjóð óx um 3,7% á öðrum ársfjórðungi samanborið við sama tímabil í fyrra en um 1,2% miðað við fyrsta ársfjórðung. Er þetta meiri hagvöxtur en sérfræðingar höfðu spáð og stafar einkum af auknum útflutningi.
Á fyrsta ársfjórðungi var hagvöxturinn 3% á ársgrundvelli og 1,5% miðað við síðasta fjórðung ársins 2009.
Á fréttavef Dagens Nyheter er haft eftir Olle Holmgren, sérfræðingi hjá SEB, að vöxturinn sé breiður og útflutningurinn hafi vaxið með meiri hraða en sést hafi í einn og hálfan áratug.
Holmgren segist reikna með því að sænski seðlabankinn hækki stýrivexti í haust enda sé hagvöxturinn meiri en búist hafi verið við. Torbjörn Isaksson, sérfræðingur hjá Nordea, tekur í sama streng og segist reikna með að stýrivextir verði orðnir 1,25% undir lok ársins en þeir eru nú 0,5%. Hann segist reikna með 4% hagvexti í ár.



















