Viðskipti
| mbl
| 30.7.2010
| 13:24
Disney selur Miramax
Walt Disney hefur selt kvikmyndaverið Miramax fyrir 660 milljónir dala (um 80 milljarða kr.) til framtakssjóðsins Filmyard, sem samanstendur af byggingaverktakanum Ron Tutor og fjárfestingafyrirtækinu Colony Capital.
Undanfarna mánuði hefur Disney átt í viðræðum við ýmsa aðila um möguleg kaup á Miramax, sem hefur framleitt kvikmyndir á borð við Pulp Fiction og Shakespeare in Love.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















