Viðskipti
| mbl
| 30.7.2010
| 7:31
Methagnaður hjá Honda
Hagnaður japanska bílaframleiðandans Honda Motor nam 272 milljörðum jena, 377 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi og hefur aldrei verið meiri á einum fjórðungi. Á sama tímabili á síðasta ári var hagnaður af rekstrinum 7,56 milljarðar jena.
Afkoman var mun betri en sérfræðingar höfðu spáð. Félagið hækkaði einnig afkomuspá sína fyrir rekstarárið í heild um 33,8% og áætlar nú að hagnaðurinn verði 455 milljarðar jena.
Sölutekjur Honda námu 2,36 billjónum jena og jukust um 17,9% milli ára. Rekstarhagnaður jókst um 831,7% og nam 234,4 milljörðum jena. Félagið segir að eftirspurn hafi einkum aukist í Asíu og Norður-Ameríku.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















