Viðskipti
| mbl
| 30.7.2010
| 7:26
Tap hjá British Airways
Tap á rekstri breska flugfélagsins British Airways nam 122 milljónum punda, 23 milljörðum króna, á öðrum fjórðungi ársins en á sama tíma á síðasta ári var tapið 106 milljónir punda. Félagið segir, að verkföll flugfreyja og öskuskýið frá Eyjafjallajökli hafi haft neikvæð áhrif á reksturinn.
British Airways segir hins vegar að undirliggjandi tekjur hafi aukist og einnig hafi tekist að draga frekar úr kostnaði. Willie Walsh, forstjóri BA, segist enn reikna með því að hagnaður verði af rekstrinum á árinu í heild.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















