Tap hjá Dagens Nyheter
Tap á rekstri Dagens Nyheter, stærsta dagblaðs Svíþjóðar, nam 332 milljónum sænskra króna, rúmlega 5,5 milljörðum íslenskra króna, á síðasta ári. Aðalritstjóri blaðsins býst hins vegar við því að hagnaður verði af rekstrinum á þessu ári.
Auglýsingatekjur drógust saman um 24% á síðasta ári milli ára, að því er kemur fram á norska viðskiptavefnum E24. Lesendum blaðsins hefur hins vegar fjölgað á þessu ári og í maí jukust auglýsingatekjur um 16%.
Haft er eftir Gunillu Herlitz, sem tók við starfi aðalritstjóra í nóvember, að tekist hafi að draga úr kostnaði. Gerðar voru miklar skipulagsbreytingar á blaðinu, m.a. var markaðsdeild sameinuð auglýsingadeild og fækkað var á netritstjórn blaðsins.
Dagens Nyheter er í eigu Bonnier Media, sem er sænskt fjölskyldufyrirtæki. Það á einnig Expressen í Svíþjóð, Børsen í Danmörku og Bo Bedre í Noregi auk fjölda annarra tímarita.
Alls var 228 milljóna sænskra króna tap á rekstri Bonnier á síðasta ári en árið þar á undan var 1,5 milljarða sænskra króna hagnaður á rekstrinum.



















