Viðskipti
| AFP
| 2.8.2010
| 14:23
Hlutabréf hækka þrátt fyrir refsiaðgerðir
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í júní að herða refsiaðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuáætlunar íranskra stjórnvalda þrátt fyrir andstöðu Brasilíumanna og Tyrkja.
Vísitalan hefur nú hækkað um 28% frá 20. mars sl. er hún var 12.537 stig. 20. mars er síðasti dagur íranska ársins.
Sérfræðingar segja að hækkunin sé meðal annars komin vegna ákvörðunar stjórnvalda um að selja 18% hlut í tveimur stórum bílafyrirtækjum, Iran Khodro og Saipa Automotive Manufacturing.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















