Viðskipti
| mbl
| 3.8.2010
| 14:09
Atvinnuleysi að aukast í Bandaríkjunum
Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, varar Bandaríkjamenn við því að atvinnuleysi í landinu eigi eftir að aukast enn, en atvinnuleysi í landinu mælist núna 9,5%.
Geithner sagði í samtali við ABC-sjónvarpsstöðina að það sé mögulegt að atvinnuleysið ætti eftir að versna áður en staðan tæki að batna. Hann fullyrti hins vegar að efnahagsástandið í Bandaríkjunum væri að batna og að ríkisstjórn Obama gerði allt sem hægt væri að gera til að ýta undir þann bata.
Fyrir helgi voru birtar tölur um atvinnuleysi í Bandaríkjunum og þar kemur fram að því er spáð að atvinnuleysi í ágúst verði 9,6%, en það var 9,5% í júlí.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















