Viðskipti
| AFP
| 4.8.2010
| 20:59
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar
Verð á hráolíu lækkaði í dag en undanfarna viðskiptadaga hefur verð á olíu farið hækkandi og var það í gær svipað og í maí sl. Kom lækkunin nokkuð á óvart þar sem jákvæðar fregnir um fjölda nýrra starfa í einkageiranum í Bandaríkjunum, stærsta hagkerfi heimsins, hefðu yfirleitt haft áhrif til hækkunar.
Á NYMEX markaðnum í New York lækkaði verð á hráolíu til afhendingar í september um átta sent og er 82,47 dalir tunnan.
Í Lundúnum hefur verð á tunnunni af Brent Norðursjávarolíu lækkað um 48 sent og er 82,20 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















