Mikil aukning í fasteignasölu
Alls var þinglýst 281 kaupsamningi um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí. Heildarvelta nam 7,6 milljörðum króna. Þegar júlí er borinn saman við júní fjölgar kaupsamningum um 26,6% og velta eykst um 30,7%.
Þegar júlí 2010 er borinn saman við júlí 2009 fjölgar kaupsamningum um 54,4% og velta eykst um 30,7%.
Meðalupphæð á hvern kaupsamning var 27 milljónir króna í júlímánuði í ár. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 4,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 2,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,7 milljörðum króna.
Makaskiptasamningar voru 50 í júlí 2010 eða 18,9% af öllum samningum. Í júní 2010 voru makaskiptasamningar 36 eða 17,4% af öllum samningum. Í júlí 2009 voru makaskiptasamningar 65 eða 36,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greitt með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði, að því er segir á vef Þjóðskrár.



















