Nýr forstjóri Reita
Guðjón Auðunsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Reita fasteignafélags hf., en félagið var reist á rústum Landic Property.
Guðjón er 47 ára aldri, rekstrarhagfræðingur að mennt. Guðjón hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Undanfarin 9 ár hefur Guðjón starfað sem framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs hjá N1, áður Oliufélaginu Esso. Þar áður vann hann sem framkvæmdastjóri hjá Samvinnuferðum Landsýn, Navís Landsteinum og sem forstöðumaður hjá Eimskip, að því er segir í tilkynningu.
Stórt fasteignasafn í eigu Reita fasteignafélags er veðsett Straumi fjárfestingarbanka fyrir tæplega 10 milljarða króna, að því er fram kom í Morgunblaðinu í síðasta mánuði.
Í desember 2007 veðsetti Stoðir fasteignafélag eignasafnið Straumi til tryggingar greiðslu á tæplega hálfum milljarði danskra króna. Stoðir fasteignafélag átti síðar eftir að kallast Landic Property. Það félag leitaði nauðasamninga í nóvember á síðasta ári, sem heitir Reitir nú, sem skuldaði mörg hundruð milljarða króna þegar mest lét. Eftir endurskipulagningu Reita námu heildareignir félagsins 90 milljörðum króna, en þær eru allar staðsettar á Íslandi. Veð Straums í fasteignasafninu nemur því rúmlega tíunda hluta af heildareignum Reita.
Í fréttatilkynningu frá Reitum segir: „Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrirtækið á sviði útleigu á atvinnuhúsnæði á Íslandi. Reitir hafa yfir að ráða fjölbreyttu fasteignasafni sem samanstendur af um 130 fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar um landið."



















