RBS tekur tilboði Santander
Royal Bank of Scotland, RBS, hefur tekið tilboði spænska bankans Santander um kaup á 318 útibúum RBS í Bretlandi.
Kaupsamningurinn hljóðar upp á 1,64 milljarð punda, eða 2 milljarða evra.
Santander er stærsti banki Spánar og munu kaupin efla áhrif bankans í Bretlandi til muna.
Breska ríkið á 83% hlut í RBS en framkvæmdastjórn ESB úrskurðaði að bankinn yrði að selja útibúin eftir að bresk stjórnvöld björguðu bankanum frá gjaldþroti.
Santander átti fyrir 1.300 bankaútibú í Bretlandi eftir röð vandlega tímasettra yfirtaka á síðustu sex árum en bankinn yfirtók útibú Abbey bankans árið 2004 og Bradford & Bingley og Alliance & Leicester á síðari hluta ársins 2008.
Útibúin sem Santander yfirtekur eru 311 RBS útibú í Englandi og Wales og sjö NatWest útibú í Skotlandi. Stefnt er að því að yfirtökunni muni ljúka í desember á næsta ári.



















