Viðskipti
| AFP
| 6.8.2010
| 14:04
| Uppfært
14:22
Afkoma Finnair lituð af eldfjallaösku
Afkoma finnska flugfélagsins Finnair á öðrum ársfjórðungi er lituð af ösku frá eldgosinu í Eyjafjallajökli fyrr á árinu. Rekja stjórnendur Finnair tap félagsins til ringulreiðar sem myndaðist í Evrópuflugi vegna eldgossins í apríl. Hefur fjármálastjóri Finnair verið rekinn en félagið hefur verið rekið með tapi í tvö ár.
Í afkomutilkynningu kemur fram að askan hafi kostað félagið 30 milljónir evra, 4,7 milljarða króna og haft áhrif á bókanir 140 þúsund farþega.
Á öðrum ársfjórðungi tapaði Finnair 28,2 milljónum evra, 4,4 milljörðum króna, samanborið við 23,4 milljónir evra á sama tímabili í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















