Gríska ríkið á réttri leið að mati ESB og AGS
Grísk stjórnvöld hafa mætt öllum þeim skilyrðum sem sett voru fyrir neyðaraðstoð Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna skuldakreppu gríska ríkisins.
Samkvæmt tilkynningu frá ESB, AGS og Evrópska seðlabankanum sem birt var í gær þá munu stjórnvöld í Aþenu því að öllu óbreyttu fá níu milljarða evra greiðslu úr 110 milljarða evra björgunarsjóð sem settur var á laggirnar í maímánuði.
Er þetta önnur greiðslan sem stjórnvöldum berst og er áætlað að hún verði greidd út næstkomandi október. Mun AGS leggja fram 2,5 milljarða evra af heildarupphæðinni og önnur aðildarríki evrusvæðisins munu greiða afganginn.
Samkvæmt tilkynningunni hefur framvinda efnahagsþróunarinnar í Grikklandi verið í takt við þær væntingar sem efnahagsaðstoðin byggðist á.



















