Viðskipti
| mbl
| 6.8.2010
| 6:42
| Uppfært
8:03
Hagnaður hjá RSB
Hagnaður var af rekstri The Royal Bank of Scotland á fyrri hluta ársins eftir mikinn taprekstur. Nam hagnaðurinn 9 milljónum punda, 1,7 milljörðum króna, en á fyrri hluta síðasta árs var rúmlega 1 milljarðs punda tap á rekstri bankans.
Bankinn, sem breska ríkið á 83% í eftir björgunaraðgerðir haustið 2008, segir að mjög hafi dregið úr afskriftum lána og fimm ára áætlun um að snúa rekstri RBS við gangi vel.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















