Forstjóri SAS hættir
Norræna flugfélagið SAS tilkynnti í morgun, að Mats Jansson, forstjóri og stjórnarformaður félagsins, muni hætta störfum innan skamms og verið sé að leita að nýjum forstjóra.
Jansson, sem er 59 ára að aldri og hefur stýrt SAS síðustu fjögur ár, segist í yfirlýsingu hafa lagt það að mörkum sem hann geti fyrir félagið og tími sé kominn fyrir hann til að hverfa til annarra starfa.
SAS hefur átt í rekstrarerfiðleikum undanfarin ár, bæði vegna aukinnar samkeppni frá norrænum lággjaldaflugfélögum svo sem Norwegian, og vegna fjármálakreppunnar. Noregur, Danmörk og Svíþjóð eiga saman um helming hlutafjár í SAS.
Á síðasta ársfjórðungi tapaði SAS 712 milljónum sænskra króna, 11,8 milljörðum íslenskra króna, meðal annars vegna öskuskýsins frá Eyjafjallajökli sem leiddi til þess að flugumferð í Evrópu stöðvaðist um tíma í apríl.
Félagið hóf á síðasta ári umfangsmikla endurskipulagningu á rekstrinum með það að markmiði að spara nærri 8 milljarða sænskra króna.



















