Viðskipti
| mbl
| 10.8.2010
| 16:32
Nýr framkvæmdastjóri Dohop
Kristján Guðni Bjarnason, verkfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri íslensku ferðaleitarvélarinnar Dohop.com. Hann tók við starfinu þann 1. ágúst síðastliðinn. Frosti Sigurjónsson sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins frá stofnun var á sama tíma skipaður stjórnarformaður.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að Kristján Guðni hafi verið einn af lykilstjórnendum Dohop frá upphafi og undanfarin ár haft yfirumsjón með rekstrarsviði fyrirtækisins. Áður en Kristján hóf störf hjá Dohop var hann yfirmaður tölvumála Veðurstofu Íslands og þá var hann einn af stofnendum hugbúnaðarfyrirtækisins Gangverks en vann þar áður hjá OZ. Kristján er með meistaragráðu í vélaverkfræði.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin