Viðskipti
| AFP
| 11.8.2010
| 10:21
Atvinnulausum fækkar í Bretlandi
Alls eru 2,457 milljónir Breta á atvinnuleysisskrá en þeim fækkaði um 49 þúsund á öðrum ársfjórðungi. Er þetta mesta fækkun atvinnulausra á skrá í þrjú ár, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Bretlands. Þrátt fyrir það er atvinnuleysið enn 7,8% á þriggja mánaða tímabili sem lauk í lok júní líkt og á þriggja mánaða tímabili sem lauk í lok maí.
Hagvöxtur mældist 1,1% í Bretlandi á öðrum ársfjórðungi og hefur ekki verið jafn mikill í fjögur ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















