Viðskipti
| mbl
| 11.8.2010
| 14:51
Farþegum Icelandair fjölgar
Farþegum Icelandair í júlí fjölgaði um 12% frá sama mánuði á síðasta ári. Það sem af er árinu hefur farþegum félagsins fjölgað um 11%. Farþegum Flugfélags Íslands fækkaði hins vegar um 3% í júlí og um 9% fyrstu sjö mánuði ársins samanborið við sama tímabil á síðasta ári.
Alls flutti Icelandair 215.684 farþega í júlí en í júlí í fyrra flutti félagið 192.149 farþega. Fyrstu sjö mánuði ársins hefur félagið flutt 808.111 farþega en flutti 728.813 farþega á sama tímabili í fyrra. Sætanýting var 86% í júlí nú en 76,1% það sem af er árinu.
Flugfélag Íslands flutti 39.501 farþega í júlí nú en 40.751 farþega í fyrra. Það sem af er árinu hefur félagið flutt 196.905 farþega.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















