Hagnaður hjá FIH í Danmörku
Hagnaður af rekstri danska bankans FIH Erhverversbank nam 102,8 milljónum danskra króna eftir skatta, jafnvirði 2130 milljóna íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður af rekstri bankans 5,8 milljónir danskra króna eftir skatta.
Á fyrri hluta ársins var hagnaður bankans eftir skatta 303,3 milljónir danskra króna, tæplega 6,3 milljarðar íslenskra króna, en á fyrri hluta síðasta árs var 290 milljóna danskra króna tap á rekstrinum.
Í tilkynningu bankans segir að afkoman á öðrum ársfjórðungi sé viðunandi. Alls hafi þurft að afskrifa lán að fjárhæð 188,5 milljónir danskra króna, sem sé í samræmi við áætlanir.
Bankinn hefur jafnframt hækkað afkomuspá fyrir árið allt um 50 milljónir danskra króna og áætlar nú að hagnaður eftir skatta verði 450 milljónir danskra króna, 9,3 milljarðar íslenskra króna.
FIH er í eigu skilanefndar Kaupþings en bankinn var settur að veði fyrir láni Seðlabankans til Kaupþing skömmu áður en íslenski bankinn hrundi.



















