Viðskipti
| AFP
| 11.8.2010
| 20:21
Veruleg lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði mjög mikið í dag í takt við aðra markaði. Virðist sem fjárfestar á hrávörumarkaði hafi látið verðbréfamarkaði hafa meiri áhrif á sig heldur en jákvæðar fréttir frá Alþjóða orkumálastofnuninni (IEA). Lækkaði verð á hráolíu um 2,23 dali tunnan í New York og er 78,02 dalir.
Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 1,96 dali í 77,64 dali tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















