Viðskipti
| mbl
| 12.8.2010
| 13:46
Verðfall hlutabréfa heldur áfram
Hlutabréf héldu áfram að lækka í verði þegar opnað var fyrir viðskipti í kauphöllinni á Wall Street í dag. Tölur, sem sýndu að nýskráningum á atvinnuleysisskrám fjölgaði í síðustu viku, varð ekki til að kæta fjárfesta.
Dow Jones hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,03% í upphafi viðskipta í dag og Nasdaq vísitalan um 1,87%. Í gær lækkaði Dow Jones um 2,49%, meðal annars eftir að tölur sýndu að viðskiptahallinn í Bandaríkjum jókst umtalsvert í júní.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















