Heimilað að setja samheitalyf á markað
Einkaleyfi bandaríska lyfjaframleiðandans Eli Lilly á frumlyfinu Strattera, sem er notað við athyglisbresti, til ársins 2017 fær ekki staðist og fá samheitalyfjafyrirtæki í Bandaríkjunum að setja samheitalyf Strattera á markað í Bandaríkjunum.
Þetta var úrskurður alríkisdómara í New Jersey í gær. Þetta þýðir að dótturfélag Actavis Group í Bandaríkjunum, Elizabeth, getur sett sitt samheitalyf á markað.
Líkt og greint var frá fyrr í vikunni þá hefur Pfizer lögsótt Actavis vegna hjartalyfs en einkaleyfi Pfizer á því lyfi rennur út árið 2017, líkt og þetta frumlyf átti að gera frá Lilly.
Er þetta annað einkaleyfismálið sem Eli Lilly tapar fyrir dómi á stuttum tíma, það er dómari styttir þann tíma sem frumlyfjafyrirtækið hefur einkarétt á markaðnum og þar til samheitalyfjafyrirtæki fá heimild til þess að setja lyf með sömu virku efnin og eru í frumlyfinu á markað. Í flestum tilvikum er samheitalyfið miklu ódýrara heldur en frumlyfið.
Í kjölfar úrskurðar dómarans í gær þá gaf Eli Lilly út afkomuviðvörun fyrir árið í ár og sagði að tekjurnar yrðu í neðri hluta spár fyrir árið.
Hlutabréf félagsins lækkuðu um tæp 3% í kauphöllinni í New York í gærkvöldi, samkvæmt frétt Reuters. Lilly ætlar að áfrýja úrskurðinum. Stefnt er að verulegum niðurskurði í rekstri félagsins og fækkun starfsfólks. Alls eru starfsmenn Lilly yfir 39 þúsund víða um heim. Á síðasta ári námu tekjur af sölu Strattera 609,4 milljónum dala, tæpum 80 milljörðum króna, eða um 3% af tekjum Lilly.



















