Viðskipti
| AFP
| 13.8.2010
| 10:33
Rekstur HRE bankans á réttri leið
Þýski fasteignalánabankinn Hypo Real Estate, sem fór mjög illa út úr fjármálakreppunni, verður rekinn með tapi í ár en vonast stjórnendur bankans að undir lok árs verði hann farinn að skila hagnaði. Áður töldu stjórnendur hans að tap yrði á rekstrinum til ársins 2012 hið minnsta. Bankinn var þjóðnýttur í fyrra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















