Endurskoða þarf afnám hafta
Talsverð óvissa er um um styrk fjármálakerfisins í kjölfar nýlegra dóma Hæstaréttar. Því er þörf á að endurskoða fyrirliggjandi áætlun um afnám gjaldeyrishafta í ljósi breyttra aðstæðna og þeirrar seinkunar sem þegar er orðin. Þetta kemur fram í skýringu Seðlabanka Íslands á lækkun vaxta í dag. Þetta þýðir að líklegt sé að fresta þurfi afnámi gjaldeyrishaftanna.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að á þessu stigi sé ekki hægt að segja til um hversu lengi þurfi að fresta afnámi gjaldeyrishafta. Í ljós eigi eftir að koma hver áhrif gengisdóma verði á fjármálakerfið.
„Eins og fram kom í síðustu yfirlýsingu peningastefnunefndar er mikilvægt á komandi misserum að auka þann hluta gjaldeyrisforða Seðlabankans sem ekki er fenginn að láni. Gengishækkun krónunnar og lækkun áhættuálags á íslenskar fjárskuldbindingar gefa nú svigrúm til gjaldeyriskaupa í þessu skyni og munu þau hefjast hinn 31. ágúst næstkomandi.
Umfang þeirra verður ákveðið með það að leiðarljósi að áhrif á gengi krónunnar verði sem minnst. Eins og áður telur nefndin forsendur áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds vera til staðar, haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. Nefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið," segir í Peningamálum Seðlabanka Íslands.



















