Greiðslustöðvun framlengd
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á beiðni Kaupþings banka um áframhaldandi greiðslustöðvun bankans til 24. nóvember. Kaupþingi var upphaflega veitt heimild til greiðslustöðvunar 24. nóvember 2008 til 13. febrúar 2009. Greiðslustöðvunin var framlengd frá 13. febrúar til 13. nóvember 2009 og loks var heimildin framlengd til 13. ágúst 2010.
Ólafur Garðarsson, aðstoðarmaður í greiðslustöðvun og meðlimur í slitastjórn Kaupþings kynnti á kröfuhafafundi fyrr í ágúst áform um að óska eftir framlengingu á greiðslustöðvun til 24. nóvember.
Greiðslustöðvunartímabilið getur í mesta lagi staðið þangað til en þá mun
Kaupþing fara sjálfkrafa í slitameðferð.
Skilanefnd Kaupþings segir, að þessi breyting á lagalegri stöðu bankans muni þó ekki hafa áhrif á núverandi starfsemi hans. Samkvæmt breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki, sem gerðar voru í fyrra, muni vernd Kaupþings banka gegn lögsóknum, þvingunarúrræðum,
innheimtuaðgerðum og öðrum ráðstöfunum eigna, sem fengin var á greiðslustöðvunartímabilinu, halda gildi sínu þegar bankinn fer í slitameðferð. Beiðni um framlengingu nú sé því einungis varúðarráðstöfun þar sem bankinn telji skynsamlegt að nota allar lagalegar leiðir til að vernda hagsmuni kröfuhafa.



















