Viðskipti
| mbl
| 18.8.2010
| 10:22
Hagnaður hjá Atlantic Petroleum
Hagnaður Atlantic Petroleum nam 60,4 milljónum danskra króna, 1.248 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi samanborið við 47,8 milljónir danskra króna á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður félagsins nam 35,8 milljónum danskra króna á öðrum ársfjórðungi og var 58,1 milljón á fyrsta ársfjórðungi.
Segir í tilkynningu frá færeyska félaginu að þetta sé besta milliuppgjör félagsins og að það hafi hækkað afkomuspá sína fyrir árið í heild.
Fram kemur í tilkynningu félagsins, að það hafi alls framleitt 419.600 tunnur af olíu á fyrri hluta ársins og áætli að tvöfalda það magn á árinu öllu.
Tekjur á ársfjórðungnum námu 104,2 milljónum danskra króna á ársfjórðungnum og hafa farið stigvaxandi á síðustu misserum.
Tilkynning Atlantic Petroleum
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















