Viðskipti
| AFP
| 18.8.2010
| 6:51
Verð á hráolíu lækkaði á ný
Verð á hráolíu lækkaði í viðskiptum í Asíu í nótt og morgun þar sem fjárfestar innleystu hagnað af hækkun á olíuverði í gær. En þá hafði heimsmarkaðsverð á olíu lækkað í fimm daga.
Verð á hráolíu til afhendingar í september lækkaði um 24 sent í New York og er 75,52 dalir tunnan.
Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í október um 19 sent og er 76,74 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















