Reynt að fegra stöðu Landsbankans

Björgólfur Thor Björgólfsson segir að reynt hafi verið að fegra fjárhagsstöðu Landsbankans þegar unnið var að einkavæðingu bankans. Staða Landsbankans hafi árið 2002 verið mun veikari en þáverandi eigendur og stjórnendur vildu viðurkenna. Þetta kemur fram í vef sem Björgólfur Thor hefur opnað þar sem hann fer yfir viðskipti sín.

Björgólfur Thor Björgólfsson benti  á það í bréfi til einkavæðingarnefndar í byrjun september 2002 að framlög á afskriftareikning Landsbankans væru verulega vanmetin. Er þetta áður en  tilkynnt var að gengið yrði til viðræðna við Samson.

Segir Björgólfur að það sæist glöggt á uppgjöri fyrstu sex mánaða ársins. Í fyrstu áreiðanleikakönnun á bankanum 15. nóvember 2002 komu einnig fram vísbendingar um þetta. Einnig komu fram ábendingar frá Fjármálaeftirlitinu og PricewaterhouseCoopers um að framlag í afskriftarreikning hefði verið í algeru lágmarki.

Áreiðanleikakönnun KPMG, sem unnin var fyrir Samson, sýndi  fram á það sama. Þar sagði að veruleg frávik væru á bókfærðu virði eigna bankans og raunstöðu. Það var mat Samson manna að þar sem frávikið væri verulegt þyrfti að styrkja bankann töluvert með hlutafjáraukningu.

Þeir töldu einnig að yfirstjórn Landsbankans, bankaráð og Ríkisendurskoðandi hefðu með skiplögðum hætti vantalið framlag á afskriftareikning útlána í því skyni að fegra afkomu bankans, segir á vef Björgólfs Thors.


mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK