Hálfs milljarðs hagnaður af starfsemi Eyris
Laust fé og aðrar bankainnistæður námu 34 milljónum evra um mitt ár.
Kjölfestueignarhlutir Eyris í Marel og Össuri eru færðir samkvæmt hlutdeildaraðferð. Bæði félögin eru skráð á Nasdaq OMX Nordic. Ef stuðst er við markaðsvirði eigna í stað hlutdeildaraðferðar reiknast eiginfjárhlutfall nú rétt rúmlega 40%, að því er fram kemur í tilkynningu.
Í tilkynningunni segir að horfur í rekstri Marels, Össurar og Stork séu góðar. Félögin séu með sterkt sjóðstreymi, trausta fjárhagsstöðu og hafi einnig styrkt samkeppnisstöðu sína enn frekar undanfarin ár. Fjármögnun þeirra sé í takt við alþjóðleg viðmið og séu hreinar skuldir þeirra á bilinu 2-4 sinnum EBITDA-rekstrarhagnaður.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris, segist í tilkynningu vera ánægður með góðan rekstur hjá Marel, Össuri og Stork á fyrri hluta þessa árs. „Stjórnendur og starfsmenn kjölfestueigna okkar hafa sýnt mikinn styrk og sveigjanleika á erfiðum tímum.
Við erum þakklát fyrir það traust sem fjármálastofnanir og fjárfestar hafa sýnt okkur. Eyrir hefur ávallt lagt mikla áherslu á skýra stefnu, gagnsæi í rekstri og langtíma fjármögnun hvort sem um er að ræða hjá félaginu sjálfu eða hjá kjölfestueignum okkar.“



















