Afkoman umfram væntingar
Útlán sem fjármögnuð eru með eigin fé eru verðtryggð og þar sem hækkun vísitölu á fyrri hluta árs er lægri en á sama tímabili í fyrra skýrir það lægri vaxtamun nú samanborið við 2009.
Vextir af þeim lánum hafa verið óbreyttir frá síðasta hausti 4,25%. Einnig var ávöxtun á lausu fé lægri en á sama tímabili á síðasta ári, en er þó góð miðað við efnahagsástand.
Útborguð lán á fyrri hluta ársins 2010 voru 2,5 ma.kr., samanborið við 6,7 ma.kr. á sama tíma árið 2009. Vanskil við útgáfu þessa árshlutareiknings voru 15 m.kr. Á tímabilinu gaf sjóðurinn út skuldabréf að fjárhæð 3,3 ma.kr. á innlendum skuldabréfamarkaði. Eigið fé í lok tímabilsins var 13,9 ma.kr. á móti 11,9 ma.kr. um mitt ár 2009.
Vegið eiginfjárhlutfall, svonefnt CAD-hlutfall, var í lok tímabilsins 82% samkvæmt Basel II reglum. Gert er ráð fyrir að hagnaður lánasjóðsins fyrir árið í heild verði svipaður því sem var síðastliðin tvö ár, en það mun aðallega ráðast af hækkun verðlags það sem eftir lifir árs og þróun skammtímavaxta.



















