Viðskipti
| AFP
| 25.8.2010
| 14:37
Fasteignasala afar dræm í Bandaríkjunum
Sala á nýjum íbúðum dróst saman um 12,4% í Bandaríkjunum í júlí og hefur ekki verið minni frá því árið 1963. Kom þetta verulega á óvart þar sem flestir hagfræðingar höfðu spáð aukinni sölu á nýjum fasteignum. Í gær var greint frá rúmlega 27% samdrætti í sölu á notuðu íbúðahúsnæði í Bandaríkjunum.
Alls voru seldar 276 þúsund nýjar íbúðir í Bandaríkjunum í júlí en í júní voru þær 315 þúsund talsins. Flestir höfðu spáð því að um 334 þúsund nýjar íbúðir hefðu selst í júlímánuði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















