Viðskipti
| mbl
| 25.8.2010
| 11:21
Stafsemi Icejet nánast lömuð
Íslenska leiguflugfélagið Icejet hefur verulega dregið úr starfsemi sinni þar sem ekki tókst að gera nýjan samning um áframhaldandi leigu á fjórum Dornier 328 flugvélum sem félagið hefur haft á leigu frá því að skilanefnd Landsbankans leysti til sín allar eignir Nordic Partners, þar á meðal flugfélagið, fyrr á árinu.
Skilanefnd Landsbanka Íslands leysti eignir Nordic Partners til sín í mars sl., samkvæmt frétt á vef Flight Global en Icejet var í eigu Nordic Partners. Icejet hóf starfsemi fyrir fimm árum og eru viðskiptavinir félagsins meðal annars hljómsveitir og íþróttalið. Hefur fyrirtækið einkum starfað á meginlandi Evrópu eftir að íslensku bankarnir fóru í þrot haustið 2008.
Segir á vef Flight Global að unnið sé að endurskipulagningu rekstrar Icejet. Félagið muni áfram fljúga fyrir ILC Aviation milli Mílanó og Farnborough.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















