Viðskipti
| mbl
| 26.8.2010
| 15:53
Atlantic Airways tapaði á öskunni
Tap varð á rekstri færeyska flugfélagsins Atlantic Airways á öðrum ársfjórðungi sem nam 1,5 milljónum danskra króna, jafnvirði um 30 milljóna íslenskra króna. Félagið segir, að hefðu ekki orðið truflanir á flugi í apríl og maí vegna öskuskýsins frá Eyjafjallajökli hefði afkoman orðið jákvæð.
Félagið segir að flugbannið vegna öskunnar hafi haft þau áhrif að tekjur minnkuðu um 5 milljónir danskra króna. Velta Atlantic Airways var 92,8 milljónir danskra króna en var 107,5 milljónir á sama tímabili í fyrra.
Á fyrri hluta ársins var tap á rekstri félagsins 8,7 milljónir danskra króna en á sama tímabili í fyrra var 12,2 milljóna danskra króna hagnaður.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















