Vilja rifta greiðslu VBS til Landsbanka
Slitastjórn VBS fjárfestingarbanka hefur sent skilanefnd Landsbankans riftunarbréf og krafið hana um 4,3 milljarða króna greiðslu, að því er kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Segir blaðið, að umrædd greiðsla hafi verið innt af hendi skömmu áður en VBS varð ógjaldfær.
Viðskiptablaðið segir, að Endurskoðunarfyrirtækið Ernst&Young hafi unnið að því í nokkra mánuði að fara yfir málefni tengd bankanum. Tilgangur þeirrar úttektar sé meðal annars að kanna hvort tilefni sé til þess að rifta einstaka gjörningum sem framkvæmdir voru á síðustu mánuðum fyrir fall
bankans. Þar sé meðal annars horft til breytinga á launasamningum starfsmanna.
VBS fékk 26 milljarða króna lán frá ríkinu í mars 2009 en bankinn var síðan lýstur ógjaldfær réttu ári síðar. Viðskiptablaðið segir, að hópur kröfuhafa bankans sé verulega óánægður með að VBS hafi fengið að starfa svona lengi eftir að hann var ógjaldfær. Telji þeir að stjórnendur bankans hafi nýtt þann tíma til að hygla sjálfum sér og völdum kröfuhöfum á kostnað almennra kröfuhafa.
Blaðið segir, að stjórnendur VBS hafi á þessu tímabili m.a. lengt gjalddaga kúlulána, sem þeir voru með hjá bankanum, til ársins 2017. Alls hafi lán forstjóra VBS, lykilstjórnenda og stjórnarmanna, numið um um 1 milljarði króna í árslok 2008.



















