Viðskipti
| mbl
| 27.8.2010
| 7:31
Afhending Dreamliner frestast
Rolls-Royce sagðist í morgun vinna náið með Boeing til að flýta afgreiðslu á hreyfingum fyrir vélarnar.
Tilkynning Boeing kom ekki á óvart en Boeing sagði í júlí að afhending vélanna kynni að frestast. Boeing segist nú ekki geta afhent All Nippon Airways í Japan fyrstu vélarnar fyrr en á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Boeing hefur að undanförnu gert tilraunir með Dreamliner en fyrsta tilraunaflugið var í desember á síðasta ári.
Icelandair hefur pantað fjórar flugvélar af þessari gerð. Afhendingin hefur dregist um tvö og hálft ár og alls er óvíst hvenær fyrsta vélin verður afhent.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















