1,9 milljarða hagnaður Landsvirkjunar
Búrfellsvirkjun sem er í eigu Landsvirkjunar. mbl.is/Ómar
Hagnaður á rekstri Landsvirkjunar nam 15,7 milljónum dala á fyrri helmingi ársins sem svarar til 1,9 milljarða króna á núverandi gengi. Á sama tímabili á síðasta ári var 47,3 milljóna dala hagnaður á rekstrinum, sem svarar til 5,7 milljarða króna.
Tekjur samstæðunnar námu 180 milljónum dala á fyrri hluta ársins en voru 179 milljónir dala á sama tímabili árið áður að teknu tilliti til áhættuvarna.
Fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun að ekki verði ráðist í nýjar framkvæmdir nema að fjármögnun þeirra sé tryggð. Fyrirspurnir og heimsóknir frá hugsanlegum orkukaupendum sýni, að eftirspurn eftir raforku frá Landsvirkjun sé mikil og vonist fyrirtækið eftir því að það skili sér í hærra orkuverði í nýjum sölusamningum.



















