Jóhannes hættir hjá Högum

Jóhannes Jónsson. stækka

Jóhannes Jónsson. mbl.is/Skapti

Jóhannes Jónsson, kaupmaður, hefur vikið úr stjórn Haga hf. og hætt störfum og afskiptum af félaginu.  Ákvæði úr samkomulagi því sem Arion banki gerði við Jóhannes Jónsson í  febrúar sl. um tilhögun á stjórnun og sölu Haga hafa verið felld úr gildi, þar með talinn forkaupsréttur hans á 10% hlutafjár í Högum.

Fram kemur í tilkynningu frá Arion banka, að gerður hefur verið 12 mánaða starfslokasamningur við Jóhannes auk þess sem hann fær 90 milljóna króna eingreiðslu við fullnaðaruppgjör á viðskiptum sínum við Arion banka. Jafnframt kaupir Jóhannes eignir á markaðsvirði: bíl, íbúð og sumarhús sem hann hefur haft til umráða.

Þá kaupir Jóhannes úr samstæðu Haga þrjár sérvöruverslanir, Top Shop, Zara og All Saints, og 50% hlut Haga í færeysku verslunarkeðjunni SMS. Kaupverð þessara eigna er 1237,5 milljónir króna sem er nokkru hærra en bókfært verðmæti þeirra á efnahagsreikningi Haga og er sanngjarnt verð að mati sérfræðinga bankans.

Hagar eru í söluferli hjá Arion banka og verður endanleg tilhögun þess og framkvæmd kynnt á næstunni. Jóhannes hefur lýst því yfir að hann hyggist bjóða í félagið í því söluferli. Í tilkynningu Arion banka segir, að það sé niðurstaða bankans að ekki sé æskilegt að selja fyrrgreindar verslanir með samstæðunni vegna  tengsla milli eigenda viðkomandi umboða og fjölskyldu Jóhannesar.

Auk þess að falla frá forkaupsrétti eru í samkomulagi bankans við Jóhannes ströng skilyrði um að Jóhannes og aðilar honum nátengdir efni ekki til samkeppni við Haga næstu 18 mánuði eftir undirritun samningsins. 

Í tilkynningu Arion banka er haft eftir Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, að þær breytingar sem felist í samkomulaginu séu að mati bankans nauðsynlegur undanfari sölunnar á Högum. Þekking Jóhannesar á rekstri Haga hafi nýst vel til að koma félaginu yfir erfiða hjalla en nú taki aðrir við og ljúki söluferlinu.

„Það er mat bankans að hagsmunir Jóhannesar og bankans fari ekki lengur saman þar sem Jóhannes hefur lýst því yfir að hann hyggist bjóða í félagið í því söluferli sem nú fer af stað og því óhjákvæmilegt að gera breytingar sem setja alla fjárfesta við sama borð. Jóhannes gefur eftir 10% forkaupsrétt og samþykkir 18 mánaða samkeppnisbann.

Ákvarðanir um að selja sérleyfisverslanir skýrast af því að umboðin fyrir þær eru ekki föst í hendi vegna persónulegra tengsla og því ekki forsvaranlegt að selja þær með Hagasamstæðunni. Salan á 50% eignarhlut í SMS byggist á því að þar er um eign að ræða sem tilheyrir ekki starfsemi Haga hér á landi. Að auki er verið að selja þessar eignir á góðu verði fyrir Haga. Eftir standa Hagar sem söluvænlegt fyrirtæki í góðum rekstri.“

Undir samstæðu Haga falla Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Evans, Dorothy Perkins, Oasis, Karen Millen, All Saints, Day og Warehouse. Jafnframt eiga Hagar innkaupafyrirtækin Aðföng, Hýsingu, Banana og Ferskar kjötvörur. Arion banki eignaðist 95,7% hlut í Högum við  yfirtöku á eignarhaldsfélaginu 1998 í október 2009. 

Sérstök tilfinning að kveðja Bónus

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi

Lækkun á Wall Street

15:14 Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

11:31 Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

10:59 Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

Verðbólgan 2,1% í Þýskalandi

Verðbólgan mælist 2,1% í Þýskalandi
09:57 Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 2,1% í Þýskalandi í síðasta mánuði. Er þetta sama verðbólga og mældist í Þýskalandi, stærsta hagkerfi innan evrusvæðisins, í desember. Meira »

Minni hagnaður hjá Barclays

Barclays bankinn
08:47 Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.  Meira »

Mun snarlækka verð á þjónustu

Vélbúnaður fluttur í gagnaverið á Ásbrú í Reykjanesbæ.
07:30 Í gær tilkynnti Verne Global fyrstu viðskiptavini gagnaversins sem fyrirtækið hefur reist við Ásbrú í Reykjanesbæ. Það eru fyrirtækin CCP og GreenQloud. Meira »

Samdrátturinn 17,7%

Gríðarlegt atvinnuleysi er á Spáni og fasteignasala dræm
10:41 Fasteignasala dróst saman um 17,7% á Spáni á síðasta ári og virðist því bati á fasteignamarkaði sem sjáanlegur var árið 2010 á Spáni vera horfinn. Meira »

Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz myndskeið

Alkemistinn mbl 43 Gillz22
09:50 Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Meira »

Lækkun á mörkuðum

08:36 Allir helstu hlutabréfamarkaðir hafa lækkað í dag vegna stöðu mála í Grikklandi þar sem fjármálaráðherrar ríkja á evrusvæðinu gera auknar kröfur um niðurskurð í Grikklandi. Meira »

Selja hlutinn á 75 milljónir

Frá Borgarnesi.
Í gær, 18:27 Byggðaráð Borgarbyggðar samþykkti í dag að taka tilboði Reykjavíkurborgar í hluta af eignarhlut í Faxaflóahöfnum. Tilboðið í hlutinn hljóðar upp á 75 milljónir króna. Meira »

Sekt fyrir netsmelli

Í gær, 16:33 Hæstiréttur hefur dæmt Icelandair til að greiða 80 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína með því að bjóða svonefnda Netsmelli árið 2004 milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Meira »

Tvær nýjar vélar í flota Icelandair

Í gær, 18:42 Forstjóri Icelandair Group segist sáttur við fjárhagslega niðurstöðu síðasta árs en 4,5 milljarða króna hagnaður varð af rekstrinum. Í ár bætast tvær nýjar flugvélar í flota fyrirtækisins. „Icelandair verður með umsvifamestu flugáætlun sína frá upphafi í ár,“ segir forstjórinn. Meira »

Misnotaði markaðsráðandi stöðu

Í gær, 17:03 Með dómi Hæstaréttar í dag er staðfest sú niðurstaða að Icelandair hafi misnotað markaðsráðandi stöðu á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Meira »

Í mál við Ryanair vegna eldgoss á Íslandi

Farþegar Ryanair sofa á flugvelli í Skotlandi í kjölfar öskuskýsins frá Íslandi í maí 2010.
í gær Ryanair segist ekki bera ábyrgð á kostnaði flugfarþega sem til féll er flugumferðarsvæðinu var lokað árið 2010 vegna eldgosa á Íslandi. Málið er flutt fyrir Evrópudómstólnum í dag. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir