Enn afgangur af vöruskiptum

Álverið í Straumsvík. Ál er stór hluti vöruútflutnings landsins.
Álverið í Straumsvík. Ál er stór hluti vöruútflutnings landsins.

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 44 milljarða króna og inn fyrir 39,3 milljarða króna. Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 4,6 milljarða króna sem er í samræmi við bráðabirgðatölur, sem birtar voru í byrjun ágúst. Í júlí 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 0,4 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu sjö mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 321,4 milljarða króna en inn fyrir 252,9 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 68,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 41,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Fyrstu sjö mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 15,0% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,8% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 42,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í  útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Fyrstu sjö mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 14,8 milljörðum eða 6,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

Vefur Hagstofunnar 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK