Enn tap hjá Reitum II
Tap Reita II ehf. (áður Landsafls ehf.) á fyrri árshelmingi ársins 2010 nam 375 milljónum króna samanborið við 1.118 milljón króna tap á sama tímabili í fyrra. Reitir II er í 100% eigu Reita fasteignafélags hf. Félagið á og rekur 18 fasteignir á Íslandi.
Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu nam 566 milljónum króna samanborið við 728 milljónir á sama tímabili í fyrra. Horfur fyrir síðari árshelming ársins 2010 eru ágætar en vænta má að rekstur félagsins haldi áfram að vera í járnum, samkvæmt tilkynningu til kauphallarinnar.
Heildareignir námu 21.257 milljónum króna þann 30. júní 2010 og breyttust óverulega frá árslokum 2009.
Eigið fé félagsins nam 3.474 milljónum króna á sama tíma. Rekstrartekjur fyrri árshelmings námu 806 milljónum króna samanborið við 905 milljónir króna á sama tíma árið áður.



















