Lilly hafði betur gegn samheitalyfjafyrirtækjunum
Lyfjafyrirtækið Eli Lilly and Co., stærsti framleiðandi geðlyfja í heiminum, hafði betur gagnvart samheitalyfjafyrirtækjum, til að mynda fyrirtækjum eins og Actavis, í áfrýjunardómstól í Bandaríkjunum í gær. Lagði dómurinn bann við því að fyrirtækin settu á markað samheitalyf Strattera, sem Lilly er með einkarétt á, á markað í Bandaríkjunum fyrr en endanlega liggur fyrir hvenær einkaleyfið rennur út.
Lyfið Strattera er notað við athyglisbresti. Samheitalyf eru lyf sem eru með sömu virku efnin og frumlyfið en yfirleitt talsvert ódýrari. Er þess vænst að niðurstaða liggi fljótlega fyrir um hversu lengi Lilly fær að halda einkaleyfinu.
Tekjur Lilly af Strattera í Bandaríkjunum á síðasta ári námu 445,6 milljónum Bandaríkjadala, 54 milljörðum króna.
Í gær hélt indverska samheitalyfjafyrirtækið Sun Pharmaceuticals Industries því fram að bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið hafi samþykkt að félagið mætti selja samheitalyf Strattera í Bandaríkjunum.
Fjölmörg önnur fyrirtæki sem hafa sótt um að selja samheitalyf Strattera í Bandaríkjunum og er Actavis Group eitt þeirra.



















