Viðskipti
| mbl
| 2.9.2010
| 9:18
| Uppfært
9:33
1% hagvöxtur í ESB
Hagstofa Evrópusambandsins, Eurostat, áætlar að hagvöxtur hafi verið 1% á öðrum fjórðungi ársins bæði á evrusvæðinu svonefnda og í öllum 27 ríkjum Evrópusambandsins að jafnaði. Er þá miðað við ársfjórðunginn á undan en á fyrsta ársfjórðungi óx landsframleiðsla á svæðinu um 0,3%.
Ef miðað er við sömu tímabil á síðasta ári mældist hagvöxtur 0,8% á fyrsta ársfjórðungi og 1,9% á öðrum ársfjórðungi í Evrópusambandinu að jafnaði.
Hagvöxtur í Bandaríkjunum mældist 0,4% á öðrum ársfjórðungi samanborið við þann fyrsta. Í Japan var vöxturinn 0,1%.
Hagstofan mun í fyrramálið birta tölur um íslenska landsframleiðslu á öðrum ársfjórðungi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















